Die Gesellschaft: Umweltbedingt

Mývetningar vilja ekki leggja náttúruna að veði

Eftirfarandi grein birtist í Akureyrivikurblad.is þ. 14. maí sl.:

„Við erum nú ekkert örvæntingarfull í atvinnumálum hér í Mývatnssveitinni og þeir sem tóku til máls á fundinum sögðust ekki vera tilbúnir til að taka áhættuna á að virkjanaframkvæmdir hefðu áhrif á lífríki Mývatns,“ segir Ólafur Þröstur Stefánsson, íbúi í Mývatnssveit, sem sat fund sem Landsvirkjun hélt í gær til kynningar á fyrirhuguðum virkjunarframkvæmdum við Bjarnarflag í Mývatnssveit. Einnig settust íbúar saman á fundi í gærkvöldi þar sem þeir ræddu málin.

„Þetta voru mjög góðir fundir og mikið af upplýsingum sem kom fram bæði frá Árna Einarssyni frá Náttúrurannsóknarstöðinni við Mývatn og Landsvirkjun. Það var mikið spurt og þeir sem tóku til máls hafa eðlilega áhyggjur af lífríkinu og framtíðinni og því hvernig staðið verði að þessari uppbyggingu allri. Þetta voru stutt erindi og mikið vísað í gögn sem menn þurfa að kynna sér og melta til að umræðan sé málefnaleg og byggð á rökum,“ segir Ólafur.

Vilja ekki leggja náttúruna að veði til að skapa störf á Húsavík
„Við erum á fullu við að vinna að atvinnuuppbyggingu í sveitinni og mikið hefur gerst í þeim málum. Það hafa orðið til mörg störf í ferðaþjónustunni og auk þess eru ýmis verkefni í vinnslu og mikil gerjun í gangi. Mikið af ungu fólki hefur verið að flytja aftur í sveitina með fullt af góðum hugmyndum og ég held að við þurfum ekki að leggja náttúruna að veði með því að virkja í Bjarnarflagi,“ segir Ólafur og bætir því við að erfitt hafi verið að fá Landsvirkjun til að svara spurningum um hversu mörg störf skapist í sveitinni vegna virkjunarinnar. „Það kom mjög á óvart að þeir hjá Landsvirkjun gátu ekki svarað því en voru búnir að reikna út hversu mörg störf sköpuðust á Húsavík sem og afleidd störf. Með fullri virðingu fyrir Húsvíkingum þá er ég ekki tilbúinn til þess að leggja náttúruna hér að veði fyrir störf utan svæðisins. Ég held að Húsvíkingar yrðu nú ekki hrifnir ef við færum að veiða hvali í Skjálfandaflóa til að byggja upp atvinnu hér, svo ég taki nú dæmið og snúi því við“.

Stórkostlegir hagsmunir fyrir heimamenn
„Menn hér hafa miklar áhyggjur af því hverjar afleiðingarnar yrðu og þykir mikilvægt að gæta ýtrustu varúðar. Þeir hjá Landsvirkjun lögðu fram skýrslur og fleira þar sem kom fram að áhættan sé engin en þeir eru auðvitað að selja okkur þessa viðskiptaáætlun og og eru tilbúnir til að taka áhættuna en þetta eru stórkostlegir hagsmunir fyrir heimamenn, það er ekki bara vatnið sjálft og lífríkið í því heldur allt Laxársvæðið, af því skapast nú gríðarlegar tekjur. Þrátt fyrir allt þá getum við ekki séð algjörlega fyrir hvað gerist ef við erum að fikta í náttúrunni og skaðinn væri gríðarlegur ef þetta hryndi allt saman, segir Ólafur. Á fundinum var spurt hvers vegna ekki væri vilji til að setja virkjunina í nýtt umhverfismat og voru svör Landsvirkjunar á þá leið að samkvæmt lögum þá þyrfti það ekki og auk þess hefði stofnunin aukið alla umhverfisvöktun.

„Það sem brennur mest á Mývetningum er hvernig við náum tökum á ferðamannaflæðinu og stýrum því svo það verði ekki til tjóns. Það er mun stærra mál og brýnna heldur en að fara að drífa þessa virkjun af stað,“ segir Ólafur að lokum.

Ljósmynd: Frá fundinum af Akureyrivikublad.is.


details

Akureyrivikurblad.is
16. Mai 2013 22:40
Ursprung: Akureyrivikurblad.is
Teile mit Freunden

Búrfellshraun - Málþing til minningar um Guðmund Kjartansson jarðfræðing

Þriðjudaginn 21. maí 2013 verður haldið í Náttúrufræðistofnun Íslands við Urriðaholt í Garðabæ, málþing tileinkað minningu Guðmundar Kjartanssonar jarðfræðings en síðasta rannsóknarverkefni hans var aldursgreining og kortlagning Búrfellshrauns sem er samheiti á mörgum hraunum í Garðabæ og Hafnarfirði og runnið hafa frá Búrfellsgíg til sjávar. Guðmundur lést árið 1972.

Málþingið verður frá kl. 13:15 til 16:15 og að því loknu verður farið að Bala, staðar á bæjamörkum Garðabæjar og Hafnarfjarðar og neðan Hrafnistu, þar sem bæjarstjórar Garðabæjar og Hafnarfjarðar, kynna sameiginlegt verkefni.

Að þessu málþingi standa auk Garðabæjar og Hafnarfjarðarbæjar, Náttúrufræðistofnun Íslands og félagið Hraunavinir.

Dagskráin verður þannig:

  1. Búrfellshraun og eldstöðvakerfi Krýsuvíkur: Kristján Jónasson jarðfræðingur
  2. Guðmundur Kjartansson og störf hans: Lovísa Ásbjörnsdóttir jarðfræðingur
  3. Faðir minn, Guðmundur Kjartansson: Solveig Guðmundsdóttir
  4. Örnefni í hraunalandslagi (Búrfellshraun) – hvaða máli skipta þau?: Reynir Ingibjartsson og Jónatan Garðarsson
  5. Fornminjar í Búrfellshrauni: Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur
  6. Verndun Búrfellshrauns: Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri Garðabæjar
  7. Ógnir við hraun: Sigmundur Einarsson jarðfræðingur

Málþingsstjóri: Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi ráðherra.

Aðgangur verður ókeypis en æskilegt að skrá sig hjá Náttúrufræðistofnun: sími 590 0500, netfang: ni@ni.is.

Ljósmynd: Óbrinnishólar, af hraunavinir.net.


details

Eydís Franzdóttir
15. Mai 2013 08:18
Ursprung: Hraunavinir / Náttúrufræðistofnun Íslands - NÍ - Garðabæ
Teile mit Freunden

VII. Þingvellir – vatn og þjóðgarður

Blámi og tærleiki Þingvallavatns í hættu!

Nauðsyn nýrrar sýnar við Þingvallavatn!
Þessi var fyrirsögn bréfs míns til aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Suðurlands í apríl 2008. Þar varaði ég við þeirri stefnu að gera Þingvallavatnssvæðið að þjóðbraut milli uppsveita Árnessýslu og Reykjavíkur. Meginefnið var þó nauðsyn þess að skoða Þingvallavatn allt, verndun þess og gildi fyrir almenning. Akstursleiðin frá Úlfljótsvatni til Heiðarbæjar er mjög fögur en hluta þeirrar leiðar á eftir að leggja bundnu slitlagi. Við góða útsýnisstaði á þessari leið þurfa að vera bílastæði og hámarkshraði aðeins 50-60 km/klst. Einnig þarf að auðvelda fólki aðkomu að bökkum Þingvallavatns. Ef horft er til framtíðar, um aðgengi almennings og ferðafólks að Þingvallavatni, væri góður göngu- og reiðhjólastígur umhverfis vatnið líklegur til vinsælda. Það verkefni kallar á samvinnu ríkis við sveitarfélög og landeigendur á svæðinu. Öllum má nú vera ljós nauðsyn þess að dreifa hinum vaxandi fjölda erlendra ferðamanna sem víðast. Þá verður jafnframt að búa þannig um hnúta að sem minnstu tjóni valdi á umhverfinu.

Náttúrurannsóknarstöð Þingvallavatns?
Við lok Laxárdeilunnar um 1976 varð til Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn sem er ríkisstofnun á fjárlögum. Það hýtur að teljast eðlilegt að hliðstæð stofnun stjórni rannsóknum á Þingvallavatni og umhverfi þess. Tæplega sýnist eðlilegt að jafn hagsmunatengdar stofnanir eins og Orkuveita Reykjavíkur og Landsvirkjun séu frumkvöðlar rannsóknarverkefna þar. Jafnvel þótt þær vinni samkvæmt góðum verklagsreglum eru minnstu grunsemdir um óeðlileg hagsmunatengsl skaðleg.

Árnesingar góðir og íbúar í nágrannabyggðum!
Er Þingvallavatn ef til vill Mývatni svo miklu ómerkilegra að ekki sé ástæða til að kosta þessu til? Kveðja, Björn Pálsson.

Ljósmyndir: Teknar 30. apríl 2013. a) Horft í suður til Svínaness frá Heiðarbæ. Þar á milli og einnig inn með Hestvíkinni, sunnar, er bílvegurinn felldur snyrtilega að brattri hlíðinni. b) Steingrímsstöð er fyrir miðju og Efra-Fall féll til Úlfljótsvatns lengst t.h. á miðri mynd. Árin 1957-1960 voru náttúruleg tengsl Úlfljóts- og Þingallavatns rofin og uppeldistöðvar bitmýs í Efra-Falli eyðilagðar með eitrun þess og þurrkun. Náttúruleg fæðukeðja lífríkis Þingvallavatns og Sogs varð þá veikari. Björn Pálsson.


details

Björn Pálsson
13. Mai 2013 10:52
Ursprung: Náttúran.is
Teile mit Freunden

VI. Þingvellir – vatn og þjóðgarður

Blámi og tærleiki Þingvallavatns í hættu!

Mýið og maðurinn
Í Jarðabók Árna og Páls frá upphafi 18. aldar er mýbitið nefnt sem skaðvaldur á jörðunum Úlfljótsvatni og Kaldárhöfða, fólk haldist ekki að verki og búpeningur tapi nyt og holdum. Helsta uppvaxtarsvæði bitmýs var í Efrafalli Sogsins frá Þingvallavatni til Úlfljótsvatns. Vegna mýbitsins höfðu Grafningsjarðir við sunnanvert Þingvallavatn gjarnan selsstöðu fyrir kvíær fjarri vatninu nærri mörkum jarða í Ölfusi. Þeir búhættir, fráfærurnar, lögðust hins vegar af snemma á 20. öld en ær munu hafa haldið sig nærri fornum seljum með lömb sín.

Raforkuver í Soginu
Ljósifoss var virkjaður árið 1937 og vatnsborð Úlfljótsvatns hækkað, Ýrufossvirkjun stuttu neðar hóf vinnslu 1953 og árið 1957 var hafist handa við virkjun Efrafalls, Steingrímsstöð. Fjöldi manns var þar við vinnu en hélst illa að verki vegna mývargs. Þá fyllti mýið loftsíur vinnuvéla svo þær þurfti jafnvel að hreinsa á þriggja klst. fresti. Því var gripið til þess ráðs sumarið að 1957 dreifa DDT eitri með bökkum Úlfljótsvatns norðanverðum. Sumarið eftir var dreifing DDT undirbúin betur, eitrinu blandað í díselolíu og sá lögur látinn renna niður Efrafallið frá upptökum þess í Þingvallavatni til Úlfljótsvatns. Jafnvel mun DDT einnig hafa verið sett í læki sem féllu í víkur Úlfljótsvatns norðvestanvert. Mýbit varð því lítið sem ekkert sumarið 1959 og með algjörri lokun afrennslis Efrafalls frá Þingvallavatni árin 1959-1993 varð þessi uppeldisstöð bitmýs og matarkista urriðaseiða gagnslaus. Þegar stíflan við inntaksop jarðganganna við Þingvallavatn brast þann 17. júní 1959 spilltust riðsvæði urriðans þar verulega. Það ásamt veikingu fæðukeðjunnar með útrýmingu mývargs hefur haft umtalsverð áhrif á lífríki Þingvallavatns og Sogsins. Síðustu 20 árin hefur nokkuð vatn verið látið renna frá Þingvallavatni um farveg Efrafalls og er ætlað að skapa mýlirfum lífsskilyrði þar.

Gufuaflvirkjunin á Nesjavöllum
Hitaveita var lögð frá Nesjavöllum til Reykjavíkur árið 1990 og 1998 var hafin raforkuvinnsla með jarðgufu þar. Kalt vatn er sótt í borholur við Grámel nærri bakka Þingvallavatns við Hagavík og hitað upp með jarðgufu í varmaskiptistöð. Heitt þéttivatn frá virkjuninni hefur lengstum runnið í grunna tjörn. Þar fellur það með öðru yfirborðsvatni niður í Lækjarhvarf og þaðan eftir bergsprungum undir hrauni til Þorsteinsvíkur. Inn úr Þorsteinsvík er gjásprunga sem áður kallaðist Seiðagjá. Þar er talið að volgrur hafi hitað vatnið í 8-10°C sem er kjörhiti urriða til riðunar.

En Adam var ekki lengi í Paradís. Árið 2000 var hitastig í gjánni orðið 15,5°C og 27,4°C árið 2011. Urriðinn hrygnir þar ekki lengur og gjáin hefur skipt um nafn og heitir Varmagjá. Ekki mun þess hitaaukning ná mjög langt út í vatnið og lítið er enn vitað um aukningu þungmálma á útrennslissvæðinu. Um mengun vegna lofttegunda í jarðgufunni svo sem brennisteinsvetnis eru möstur Búrfellslínu talandi vitnisburður. Sá sem fer veginn frá Úlfljótsvatni til Nesjavalla getur séð það með samanburði á möstrum þeirrar sömu línu.

Í næstu og síðustu grein verður fjallað um aðgengi fólks að bökkum Þingvallavatns og mögulega betri skipan á náttúrurannsóknum þar.

Ljósmyndir: Teknar 30. apríl 2013. a) Inntaksmannvirki Steingrímsstöðvar. b) F.v. Þorsteinsvík í stefnu á Arnarfell, hús ferskvatnsholanna í stefnu á Miðfell og Lækjarhvarf við myndkant á miðri mynd. Björn Pálsson.


details

Björn Pálsson
12. Mai 2013 11:41
Ursprung: Náttúran.is
Teile mit Freunden

Stóriðjustefnan og Hvalfjörður

Á tíunda áratug síðustu aldar lagði ríkisstjórn Íslands áherslu á að laða til landsins mengandi stóriðju með boðum um ódýra raforku. Gefinn var út auglýsingabæklingur í þessum tilgangi og bar hann yfirskriftina „Lowest energy prices!! In Europe for new contracts.“ Þar var orka fallvatna sett á útsölu og umhverfisvernd gerð léttvæg sbr. setninguna „operating licence is usually granted with a minimum of environmental red tape.“ Uppbygging heilbrigðis- og tryggingakerfisins var kynnt sem kjarabót fyrir iðjuverin þar sem útgjöld þeirra yrðu óveruleg þó eitthvað brygði út af með heilsu starfsmanna. Þessi bæklingur sem finnst ekki lengur á pappírsformi, gengur manna á milli á vefnum. Hann mun hafa skilað nokkrum „árangri“ varðandi stóriðjuáformin en einkum þó ómældri skömm fyrir höfunda hans.

Mengandi stóriðja hefur nú búið um sig á Íslandi. Hún tekur til sín um 3⁄4 af raforku landsins og skilar langtum minni tekjum í þjóðarbúið en vænst var. Mengun af völdum hennar er veruleg og hættuleg efni á ferð. Þann fórnarkostnað sem Íslendingar hafa greitt í formi raskana og eyðileggingar á umhverfinu þekkja allir en Lagarfljót og Kárahnjúkar eru nærtæk dæmi.

Þrátt fyrir þessar staðreyndir eru stjórnarflokkar tíunda áratugarins enn við sama heygarðshornið gagnvart náttúruauðlindum og umhverfi eins og heyra má af umræðum líðandi stundar í undirbúningi kosninga til Alþingis. Fólk sem ann landi sínu og skilur samhengi hlutanna sneiðir hjá frambjóðendum með slíkan málstað.

Veruleiki stóriðjudraumsins
Á Grundartanga við Hvalfjörð eru starfrækt afkastamikil mengandi iðjuver á landi í eigu sameignarfélagsins Faxaflóahafna en það er að stærstum hluta í eigu Reykjavíkurborgar. Stærstu iðjuverin eru Elkem Ísland í eigu kínverska fyrirtækisins Bluestar og Norðurál í eigu bandaríka fyrirtækisins Century Aluminium.

Fáir leikmenn skilja hvers vegna mengandi iðnaði var valinn staður í blómlegu landbúnaðarhéraði og fáa grunaði hvað leyndist í pokahorninu þegar fyrsta iðjuverið var reist á Grundartanga árið 1979. Margir hafa fengið störf í tengslum við stóriðjuna og því er gjarnan slegið fram til mótvægis gagnrýnisröddum vegna mengunar og umhverfisspjalla. Það er ekki rökréttur málflutningur.

Faxaflóahafnir sf. hafa lagt mikla áherslu á að nýta ríflega 600 hektara landsvæði sitt á Grundartanga til hafnsækinnar starfsemi af ýmsum toga enda er um verulega miklar auðlindir að ræða þar: Góða hafnaraðstöðu og hæfilega fjarlægð frá Reykjavík. Líta má á athafnir fyrirtækisins sem einskonar „nýlendustefnu“ Reykjavíkurborgar gagnvart nágrannasveitarfélögum sínum vegna verkaskiptingar hafnanna. En stefnan er nokkuð vel dulin og vafin inn í bros og kurteisishjal.

Ekki sér fyrir endann á athafnasemi Faxaflóahafna sem veifa hvítum fána við og við og benda á Katanestjörn sem dæmi um endurheimt votlendis á þeirra vegum. Þannig leitast sameignarfélagið við að draga athyglina frá neikvæðum afleiðingum mengandi starfsemi á

Grundartanga. Það er lítill og lélegur plástur á sárin. Hvers vegna er ekki frekar lögð áhersla á ítarlegar umhverfisrannsóknir utan þynningarsvæða iðjuveranna og eflingu grunnrannsókna til að fá marktæk viðmiðunargildi? Hvers vegna fást ekki svör við spurningum um tilurð þynningarsvæða fyrir flúor og brennistein og bætur til eigenda bújarða sem lentu innan markanna? Hvers vegna er ekki löngu komið upp viðvörunarkerfi fyrir íbúa svæðisins ef mengunarslys verða? Hvers vegna geta íbúar ekki lesið í tölvunni sinni hvernig loftgæðum er háttað hverju sinni? Hvers vegna er flúor, sem er eitur, ekki mælt á vöktunarstöðvum yfir vetrartímann? Mörgum fleiri spurningum er ósvarað og það er forsvarsmönnum Faxaflóahafna kunnugt um.

Á sama tíma og einstefnukennd uppbygging með áherslu á stóriðju hefur átt sér stað á Grundartanga hafa mjög fáir sveitarstjórnarmenn nefnt hugtakið byggðaþróun eða lýst áhyggjum yfir misvægi í þróun byggðar við Hvalfjörð. Grundartangi hefur orðið líkt og sjálfstætt ríki innan sveitarfélagsins, algjörlega á eigin forsendum. Fjármagnið ræður för og margir vilja fá sneið af kökunni. Ef til vil eru færri tilbúnir að axla ábyrgð á afleiðingum af þeim „kökubakstri“.
Að axla ábyrgð felst m.a. í að horfast í augu við þá staðreynd að iðjuverin sem eru leiguliðar Faxaflóahafna, geta haft aðrar atvinnugreinar í firðinum í hendi sér eins og nú er í pottinn búið. Íbúar og atvinnurekendur við Hvalfjörð mega eiga von á ómældu útsleppi mengandi efna og jafnvel mengunarslysum líkt og dæmi er um. Að axla ábyrgð er að þora að viðurkenna mengunina og þora að laga þessa stöðu.

Varðandi bein áhrif iðjuveranna á landbúnað má nefna að árið 2012 mældist flúor yfir viðmiðunarmörkum vegna tannskemmda í beinsýnum fullorðins sauðfjár frá átta bæjum af þrettán við fjörðinn. Há gildi flúors hafa mælst í beinsýnum hrossa. Í mjúkvefjum hrossa hafa einnig mælst há gildi flúors en einstakingar hafa þurft að bera kostnað af slíkum mælingum vegna tregðu eftirlitsstofnana að sinna þessum þætti vöktunar.

Íslenskir bændur eiga því ekki að venjast að þurfa að berjast frá degi til dags við að halda gæðum og verðgildi jarða sinna óskertum. Það getur vafist fyrir mönnum að leggja út á svo grýtta braut en hjá því verður varla komist lengur að horfast í augu við hina hættulega mengun frá iðjuverunum og ásækna krumlu höfuðborgarinnar.

Ferðaþjónustuaðilar í firðinum hafa þegar lent í vandræðum vegna ýmissa fylgikvilla frá Grundartanga. Efnamengunin hefur verið nefnd. Sjónmengun er af verksmiðjusvæðinu frá mörgum fallegum stöðum við fjörðinn. Ljósmengun truflar ferðamenn sem vilja horfa á aurora borealis, hin víðfrægu norðurljós, að kvöldlagi og hávaðamengun truflar þá friðsæld sveitarinnar sem heimamenn og ferðamenn sækjast eftir.

Svo er ekki hægt að líta framhjá áhrifum iðjuveranna á samfélögin við Hvalfjörð þar sem ótti við mengun og afleiðingar hennar er orðinn fastur liður í daglegu lífi margra íbúa og tortryggni í garð iðjuveranna, Faxaflóahafna og sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar hefur búið um sig. Það er réttnefnd samfélagsmengun.

Efnamengun og stjórnsýsla
Alvarlegasti fylgifiskur stóriðjunnar er efnamengunin. Hún hefur enn ekki verið rannsökuð til hlítar í umhverfi Grundartanga en gerðar eru mælingar samkvæmt fyrirmælum í starfsleyfum iðjuveranna og umhverfisvöktunaráætlun. Stóriðjufyrirtækin á Íslandi gera sjálf tillögur um umhverfisvöktun vegna eigin mengunar, sjá um framkvæmd hennar og hafa mikið um það að segja hvað er mælt, hvenær, hversu víða og hversu oft. Hvaða önnur fyrirtæki njóta slíkra „hlunninda“ á Íslandi?

Stóriðjufyrirtækin borga sjálf þeim stofnunum sem annast mælingar og athuganir og greiða einnig sjálf eftirlitsgjald til Umhverfisstofnunar. Spyrja má hvort hlutleysi eftirlitsstofnunarinnar sé tryggt þegar um slík bein fjárhagsleg tengsl er að ræða. Iðjuverin standa sjálf fyrir árlegum kynningarfundum vegna niðurstaðna úr umhverfisvöktun. Til að lýsa þessum fundum þarf annan vettvang, en undirritaðri þykir fyrirbærið „ímyndarsköpun“ fá nýjar víddir á þessum fundum.

Þegar starfsleyfi og umhverfisvöktunaráætlun iðjuveranna á Grundartanga eru skoðuð má auðveldlega sjá að losunarheimildir mengandi efna eru alltof rúmar og illa rökstuddar og að hægt er að gera mun betur í mengunarvörnum. Norðurál á Grundartanga má til dæmis sleppa mun meira af flúori út í andrúmsloftið heldur en álver Alcoa í Reyðarfirði. Samkvæmt ársfjórðungsskýrslum lokar Norðurál reykhreinsivirkjum við og við en það gengur í berhögg við starfsleyfið sem kveður á um að mengunarvarnabúnaður skuli ávallt vera í notkun. Bilun á hreinsibúnaði varð í Norðuráli í ágúst 2006 með þeim afleiðingum að flúor streymdi út í andrúmsloftið talsvert á annan sólarhring úr einu reykhreinsivirki, án þess að íbúum í nágrenninu væri gert viðvart um það. Hvorki verður séð í vöktunarskýrslu ársins 2006 né ársins 2007 að afleiðingar óhappsins hafi verið rannsakaðar sérstaklega. Til dæmis voru engin heysýni tekin til flúormælinga af nærliggjandi bújörðum sumarið 2007 og sumarið 2006 voru heysýni tekin af túnum fyrir mengunarslysið. Með slíku eftirliti rata réttar upplýsingar ekki á blað.

Norðuráli ber samkvæmt starfsleyfi að hafa umhverfisstjórnunarkerfi. Nú fyrst árið 2013, fimmtán árum eftir að iðjuverið hóf starfsemi stendur til að taka staðlað umhverfisstjórnunarkerfi í notkun. Á hvaða róli er eftirlitsstofnunin UST? Svarið er að hluta til að finna á vef stofnunarinnar þar sem farið er lofsamlegum og gagnrýnislausum orðum um álverin og búnað þeirra.

Söfnun upplýsinga um mikilvæga þætti í náttúru og lífríki umhverfis iðjuverin hefur ekki hlotið náð fyrir augum þeirra sjálfra og því er þeirri upplýsingasöfnun ekki sinnt. Það hefur t.d. ekki fengist samþykkt að flúor sé mælt skipulega í beinum langlífra grasbíta í grennd við iðjuverin en slíkar mælingar myndu gefa upplýsingar um langtíma uppsöfnun flúors í búfénaði og áhrif hennar.

Sérfræðingar í opinberri þjónustu hafa skautað á mjög hálum ís varðandi ákvarðanir um þolmörk íslenskra húsdýra fyrir mengandi efnum. Sem dæmi má taka að notuð er tuttugu ára gömul rannsókn á norskum dádýrum sem viðmið um þolmörk íslensks sauðfjár og hrossa fyrir flúori. Af einhverjum ástæðum eru húsdýrin, lífsbjörg þjóðarinnar um aldir, ekki látin njóta vafans.

Íslenskir stjórnmálamenn og opinber stjórnsýsla virðast því miður ekki hafa burði til að setja erlendum stórfyrirtækjum þær skorður sem nauðsynlegar eru til að vernda hagsmuni landsmanna, hvort sem litið er til skattlagningar arðs af fyrirtækjunum eða umgengni þeirra um íslenska náttúru og lífríki.

Að hugsa heildrænt og til enda
Nú þegar gætir ruðningsáhrifa frá iðjuverunum í Hvalfirði og verði ekki gripið til þess að setja þeim strangari mörk um losun mengandi efna munu íbúar bera skarðan hlut frá borði, fyrst bændur og ferðaþjónustuaðilar. Lögmál frumskógarins eða afdönkuð nýlenduhugsun eiga ekki að ráða framtíð fjarðarins og það á ekki að leyfa mengandi iðnaði að setja aðrar atvinnugreinar við Hvalfjörð í uppnám. „Í upphafi skyldi endinn skoða“ og staða Hvalfjarðar er dæmi um að það gleymdist.

Að gaspra um auðveldar lausnir í atvinnumálum í þeim tilgangi að næla sér í atkvæði líkt og stóriðjuflokkarnir frá tíunda áratugnum gera nú, er ábyrgðarlaust. Talsmenn þessara flokka þykjast vita hvernig eigi að liðka „hjól atvinnulífsins“ en sú stjórnmálastefna og framkvæmd hennar hefur reynst þjóðinni dýrkeypt. Stóriðjuáform fela alltaf í sér stórkostleg og óafturkræf inngrip í náttúruna og kalla á miklar fórnir. Þjóðin hefur þegar fengið að súpa seyðið af því.

Nú ættu nefndir „lukkuriddarar“ að sýna auðmýkt í kosningabaráttunni og líta til fyrri verka. Ef viljinn er fyrir hendi þá er einmitt núna tækifæri til þess að ræða málefnalega um leiðir til að efla eftirlitsstofnanir stjórnsýslunnar þannig að þær muni í framtíðinni geta axlað verkefni sín gagnvart skilgetnum afkvæmum stóriðjustefnunnar, hinum mengandi iðjuverum. Síðast en ekki síst ættu þessir frambjóðendur og aðrir að hvetja þjóðina til að nýta hugvitið til atvinnusköpunar vegna þess að þeir vita undir niðri að réttlát og sanngjörn umgengni um auðlindir þjóðarinnar er það sem helst getur haldið þjóðarskútunni á floti og gert okkur mögulegt að að vera stolt þjóð.

Hvalfirði, 23. apríl 2013, Ragnheiður Þorgrímsdóttir.

Ljósmynd: Séð yfir Hvalfjörð, Faxaflóahafnir.


details

Ragnheiður Þorgrímsdóttir
12. Mai 2013 10:10
Ursprung: Náttúran.is
Teile mit Freunden

12342651101251252253

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012   2013  
jan   feb   mär   apr   mai  

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Waren
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche nach Waren
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Neue Kommentare:

18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
18 styrkjum úthlutað til verkefna sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Frá vitund til verka - Bill McKibben með fyrirlestur í Norræna húsinu
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
X13 Umhverfisvernd - Svör stjórnmálahreyfinga við spurningum umhverfisverndarsamtaka og Náttúran.is
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
VERNDUM LÍFRÍKI MÝVATNS
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Bláa tunnan
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Bláa tunnan
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur frumsýnd
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá:

Náttúran.is á Facebook.