Gesundheit: Gesundheitsprodukte
Heilsuvörur á Náttúrumarkaði
Heilsuvörur eru vörur sem stuðla að bættri heilsu á einhvern hátt. Í dag er nokkuð erfitt að skilgreina hvað flokkast undir heilsuvörur og hvað ekki, því úrvalið er gríðarlegt og hugtakið heilsa svo víðfemt. Það sem fyrir einn er hollt er kannski óheppilegt fyrir annan svo það er erfitt að alhæfa í því sambandi.
Til að mynda eru þarfir ófrískra kvenna aðrar en fullorðins karlmanns. Staðhæfingar á umbúðum hlýta reglum Umhverfisstofnunar og þar sem við á einnig reglum Lyfjastofnunar.
Hér í heilsuvörudeild Náttúrumarkaðarins eru allar upplýsingar skráðar sem koma fram á umbúðunum. Heilsuvörur geta verið bæði til inntöku eða notaðar útvortis. Í heilsuvörudeildinni finnur þú fjölmargt, því náttúran sér okkur fyrir miklu úrvali af jurtum, sjávarfangi, snefilefnum og flestu sem getur stuðlað að bættri heilsu. Sumar vörur eru byggðar á hefðum, alþýðulækningum eða almennum daglegum venjum í gegnum tíðina, aðrar á vísindalegum rannsóknum. Leitið alltaf til læknis við alvarleg líkamleg einkenni eða sjúkdóma.
Öllum er velkomið að selja vörur í gegnum Náttúrumarkaðinn. Skoða heilsuvörudeild Náttúrumarkaðarins.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Náttúran er
23. Mai 2011 22:34
Ursprung: Náttúran.is
Heilsuveisla í Súlnasal Hótel Sögu um helgina
Blásið er til Heilsuveislu í Súlnasal Hótel Sögu dagana, 19. - 20. febrúar 2011. Veislan er í formi fyrirlestra, kynninga, sýnikennslu og skemmtiatriða. Gestir fá heilsumat og ógrynni af upplýsingum og uppskriftum. Einnig verður heilsumarkaðstorg þar sem fyrirtæki er starfa innan þessa ramma kynna vörur sínar og þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á llífrænar vörur.
Hér verða meistarakokkar á borð við Auði heilsukokk með sýnikennslu, innlendir framleiðendur, fulltrúar veitingastaða, snyrtifræðingar, atvinnudansarar, nuddarar og margt fleira. Náttúran.is tekur þátt í veislunni og mun kynna þjónustu sína og gefa gestum Græn Reykjavíkurkort, veggspjöld og Náttúruspil.
Sérstakir gestir eru:
Anna Birna Ragnarsdóttir, Anna Claessen, Auður Ingibjörg Konráðsdóttir, Ásta Valdimarsdóttir, Benedikta Jónsdóttir, Bjargey Aðalsteinsdóttir, Edda Björgvinsdóttir, Heiðar Jónsson, Helga M. Bergsteinsdóttir, Kristbjörg Kristmundsdóttir, Kristín Vala Ragnarsdóttir, Kristján Viðar Haraldsson, Matti Oswald, Unnur Kolka Leifsdóttir og Yesmine Olsson.
Skipuleggjendur ráðstefnunnar eru; IceStat, NordicaSpa ehf., Heilsukokkur ehf., Edda Björgvinsdóttir og Markmið.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
16. Februar 2011 08:49
Ursprung:
Kate Magic heldur námskeið á Íslandi
Kate Magic er reyndasti hráfæðis frömuður í Bretlandi í dag. Hún hefur næstum tveggja áratuga reynslu af því að neyta hráfæðis og elur syni sína þrjá á þannig fæði.
Hún er höfundur fjögurra bóka um hráfæði lífstílinn, 'Eat Smart, Eat Raw', 'Raw Living', 'Raw Magic', "Ecstatic Beings' og ferðast um heimin og heldur fyrirlestra og vinnustofur um hráfæði. Öllum bókunum hefur verið vel tekið og halda áfram að seljast eftir því sem áhuginn á hráfæði vex.
Kate er Creative Director hjá Raw Living sem auk þess að vera stór vefverslum, býður ráðgjöf og upplýsingar um hráfæði og lífstílinn sem því fylgir. Hún hefur skapað yfir 20 einstakar vörur fyrir Raw Living merkið, m.a. súkkulaðistykki, hnetublöndur, te og húðkrem.
Kate verður með tvö námskeið á íslandi dagana 14. og 15. janúar 2011
Föstudagur 14. janúar
Á þessu tveggja tíma námskeiði mun Kate deila með þáttakendum eins miklu og hún getur af RAW Magic spekinni. Hvað ber að forðast og hvað er nauðsinlegat að hafa í hráfæðinu. Hvernig umbreiting í hráfæði og bætt mataræði getur verið auðveld og án jójó áhrifa. Kate mun tala um suma af þeim slæmu ávönum sem fólki hættir til að lenda í og hvernig ber að forðast þá.
Kate mun einnig tala um hvað gerist þegar þú ferð að neyta besta mögulega matar sem náttúran gefur af sér og þá alsælu sem fylgir því.
Boðið verður upp á te og Kate verður með bækur sínar til sölu sem og súkkulaði.
Laugardagur 15. jan
Á þessu fjögurratíma námskeiði fer Kate dýpra í hverng og hversvegna Hráfæði er nauðsinlegt og einnig mun hún vera með sýnikennslu.
Sýnikennsla Kate hefur notið mikilla vinsælda í hráfæði heiminum og þá helst vegna þess að sýnikennslan er ekki hefðbundin sýnikennsla heldur gefur hún þáttakendum einfaldar formúlur sem þeri geta svo aðlaga sýnum smekk. Kate er einnig einn besti hrásukkulaðigerðarkona heimsins í dag.
Bókun á námskeiðin er á http://events.glo.is/
Ljósmynd: Kate Magic af rawliving.com
details
Sólveig Eiríksdóttir
12. Januar 2011 11:06
Ursprung: Veitingastaðurinn Gló - Listhúsinu, Reykjavík
Nýtt frá Móður Jörð - Byggflögur
Komin er á markað ný vara „Byggflögur“ frá Móður Jörð, vörumerki lífræna bús Eymundar Magnússonar og Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur í Vallanesi. Byggflögur Móður Jarðar er valsað lífrænt bygg og hentar vel í grauta, bakstur (brauð, kökur og kex), slátur, músli og aðra matargerð.
Byggflögurnar innihalda trefjaefni úr hýði byggsins sem eru mikilvæg fyrir heilsuna auk vítamína og steinefna og þær veita orku fyrir daginn úr flóknum kolvetnum. Trefjaefnin í byggflögunum eru bæði óleysanleg trefjaefni sem eru mikilvæg fyrir meltinguna og vatnsleysanleg. Meðal vatnsleysanlegu trefjaefnanna eru beta-glúkanar en þeir geta lækkað kólesteról í blóði og dregið úr blóðsykursveiflum.
Með byggflögum öðlast gamli góði hafragrauturinn nýtt líf úr íslensku hráefni.
Vöruúrval Móður Jarðar samanstendur nú að eftirfarandi vörutegundum auk jólatrjáa og fjölda grænmetistegunda:
- Korn og kornafurðum s.s. Bankabyggi, byggmjöli og -flögum
- Sultuðu grænmeti s.s. rauðrófum og rófum, sultum
- Hrökkbrauði (Hrökkvi) 3 gerðum með byggi og íslenskum jurtum (s.s. kúmeni og hvönn)
- Frosnum grænmetisréttum (grænmetisbuffum)
- Nuddolíum
Uppskrift af bygggraut fyrir tvo:
2 dl byggflögur, 5 dl vatn, 1/2-1 tsk salt. Soðið í u.þ.b. 5 mínútur. Má bragðbæta eftir smekk m.a. með rúsínum, kanil, fræjum, berjum eða sultu.
Næringargildi í 100 g er u.þ.b:
Orka 1450 kJ / 346 kcal
Prótein 12 g. Kolvetni 64 g. Fita 2 g, þar af mettaðar fitusýrur 0,4 g. Trefjar 10 g, þar af beta-glúkanar 3 g. Natríum 0,02 g. Járn 2 mg. Þíamín (B1-vítamín) 0,3 mg.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
4. Dezember 2010 10:57
Ursprung: Móðir Jörð ehf, Vallanesi / Náttúran.is
Öko-bewusst einkaufen!

Til þess að auðvelda innkaup á vörum og þjónustu sem eru síður skaðleg umhverfi og heilsu hefur Náttúran.is tekið saman 11 viðmið sem spanna veigamestu þættina. Viðmiðin eru einföld og hjálpa til að nálgast markmiðið, það er að velja bestu vöruna út frá sjónarmiði heilsu, umhverfis og jafnvel félagslegum aðstæðum sem í daglegu tali eru nefnd sjálfbær þróun.
Viðmiðin eru: Orka, eldsneyti, vatnsnotkun, ofnæmi, hættuleg efni / tilbúin efni, þungmálmar, öryggisblað, umhverfismerkingar, sanngirnisvottun, vinnuumhverfi og endurvinnsla.
Hér til hægri, undir flipanum Viðmið sérð þú táknmyndir fyrir vistænu innkaupaviðmiðin í láréttu röðinni og í lóðrettu röðinni táknmyndir ýmissa vörutegunda. Ef þú smellir á þessi tákn getur þú lesið þig til um hvert viðmið og vörutegund fyrir sig auk þess sem að auðvelt er að sjá hvaða viðmið eiga við hverja vörutegund þar sem viðeigandi viðmið eru sýnileg í láréttu línunni út frá vörunni.
Eitt eða fleiri af þessum viðmiðum eiga að meira eða minna leiti við um hverja einustu vöru. Um leið og við gerum okkur grein fyrir því eftir hverju þarf að leita til að velja vistvænstu vöruna verða vistvæn innkaup leikur einn.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Náttúran er
19. April 2010 00:26
Ursprung: Náttúran.is

Der Natur-Markt
Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?- Waren
- Kategorien
- Korb
- Suche nach Waren
- Normen
- Bedingungen


E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Ereigniskalender
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | mai |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | mai |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | mai |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | mai |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jun |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jun |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jun |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jun |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jun |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | jul |
freitag 24. mai
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Óhagstætt
Sjá grein: Sáðalmanak fyrir maí 2013

Neue Kommentare:
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
+ Fleiri ummæli

Náttúran.is á Facebook.




